Heilbrigðisvísindabraut er nám á framhaldsskólastigi og ætlað að undirbúa nemendur fyrir háskólanám í heilbrigðisgreinum; samkeppnispróf í hjúkrunarfræði og inntökupróf lækna- og tannlæknadeildar.
- Náminu lýkur með stúdentsprófi
- Námstími er þrjú ár
Heilbrigðisvísindabraut er nám á framhaldsskólastigi og ætlað að undirbúa nemendur fyrir háskólanám í heilbrigðisgreinum; samkeppnispróf í hjúkrunarfræði og inntökupróf lækna- og tannlæknadeildar.
Heilbrigðisvísindabraut er í boði í Fjölbrautaskólanum við Ármúla og er hluti námsframboðs Heilbrigðisskólans.
Umsækjendur þurfa að hafa lokið skyldunámi í samræmi við Aðalnámskrá grunnskóla og staðist grunnskólapróf í kjarnagreinunum íslensku, ensku og stærðfræði.
Fræðslusjóðir stéttarfélaga veita oft styrki til náms. Fáðu frekari upplýsingar hjá þínu félagi.
Náminu er skipt upp í fjóra hluta:
Annars vegar er um að ræða sérhæfingu á Hjúkrunarlínu og hins vegar Lækna-, tannlækna- og sjúkraþjálfunarlínu. Í náminu þarf að ljúka að lágmarki 35 einingum á þriðja hæfniþrepi.
Náminu lýkur með 200 eininga stúdentsprófi af bóknámsbraut sem ætlað er til undirbúnings fyrir háskólanám í heilbrigðisgreinum.