NÁM

Norður Atlantshafs­bekkurinn

Norður Atlantshafsbekkurinn (NGK) er námstilboð fyrir ungmenni á Íslandi, í Færeyjum, Grænlandi og Danmörku sem vilja ljúka stúdentsprófi á þremur árum og kynnast í leiðinni nágrannalöndunum þremur.

Kennslan fer að mestu fram á dönsku, námsframboð er samkvæmt danskri námskrá og um að ræða almennt stúdentspróf af náttúrufræðibraut.

Kennsla

Fyrsta námsárið fer fram í Danmörku, í Gribskov Gymnasium í Helsinge. Á öðru ári flyst námið á haustönn í skólann Miðnám í Kambsdal Færeyjum en vorönnin heim í Verzlunarskóla Íslands. Þriðja og síðasta árinu er síðan varið á Grænlandi í GUX, Sisimiut skólanum.

Í NGK bekknum eru nemendur frá þessum fjórum löndum, öll saman í bekk þau þrjú ár sem tekur að ljúka stúdentsprófi.

Í Danmörku búa nemendur í  ungmennabúðum í næsta nágrenni við skólann, í Færeyjum á fjölskylduheimili nærri Kambsdal á Austurey og á Grænlandi er boðið upp á heimavist. Sjá nánar á heimasíðu námsins á vef Versló.

Kröfur

Umsækjendur þurfa að hafa lokið skyldunámi í samræmi við Aðalnámskrá grunnskóla. Umsóknir eru sendar Verzlunarskóla Íslands og Gribskov gymnasium á dönsku ásamt rökstuddri umsögn.

Engin skólagjöld eru innheimt en greitt fyrir húsnæði, uppihald og ferðir.

Námsskipulag

Námsgreinar eru fjölbreyttar en sérstök áhersla lögð á líftækni, norðurskautstækni, stærðfræði og eðlisfræði en einnig er á brautinni kennd málnotkun, náttúruvísindi, danska, saga, enska, íþróttir, samfélagsfræði, fornaldarfræði, trúarbragðafræði, fjölmiðlafræði og menningarfræði.

Að loknu námi

Náminu lýkur með stúdentsprófi af náttúrufræðibraut sem er sambærilegt og frá dönskum framhaldsskóla.

Störf
Ekki þinn tebolli?

Skoðaðu aðra valmöguleika

Náms- og starfsráðgjöf