Stjórnmálafræði er nám á háskólastigi. Námið fjallar allt í senn um íslensk stjórnmál, samanburð við önnur ríki sem og alþjóðastjórnmál.
- Grunnnámi lýkur með BA – gráðu
- Námstími er þrjú ár
Stjórnmálafræði er nám á háskólastigi. Námið fjallar allt í senn um íslensk stjórnmál, samanburð við önnur ríki sem og alþjóðastjórnmál.
Nám í stjórnmálafræði hefur verið kennt í stjórnmálafræðideild Háskóla Íslands hvort tveggja til BA – prófs og meistaragráðu.
Inntökuskilyrði eru stúdentspróf eða sambærilegt próf.
Námið er lánshæft til framfærslu og skólagjalda hjá Menntasjóði námsmanna. Fræðslusjóðir stéttarfélaga veita oft styrki til náms. Fáðu frekari upplýsingar hjá þínu félagi.
Í BA – náminu í H.Í. skiptist námið í inngangsnámskeið, aðferða- og tölfræði, Evrópu- og alþjóðastjórnmál og kenningar og stjórnmálaheimspeki auk valnámskeiða.
Að loknu prófi er hægt að starfa sem stjórnmálafræðingur en margskonar framhaldsnám er einnig í boði.